gleðin sprakk á vörum þeirra

Eiginmaðurinn fékk sendan pípuhatt með póstinum í dag. Hann er að safna sér í hrekkjavökubúning og fær nú alls konar kassa af ýmsum stærðum og gerðum senda frá amazon.com dag eftir dag. Eldri sonurinn ljómaði eins og sólin þegar hatturinn var tekinn upp úr kassanum og gleðin var mikil eins og þið sjáið. Það var skellt í eitt dásemdar danspartí…

View Post

hjarta mitt brosti

Ég er búin að sitja lengi og hugsa um hvað ég sé þakklát fyrir í dag. Til að byrja með fannst mér það ekki vera neitt voðalega margt, ekkert svona einstakt – þetta var ósköp venjulegur dagur fyrir utan maurabardagann sem átti sér stað eftir hádegið. Ég barðist líka hetjulega við síþreytuna sem hefur verið að hrjá mig undanfarna daga.…

View Post

365 þakklæti

Fyrir næstum því tveimur árum síðan tók ég þátt í verkefni sem kallast 365 grateful og gerði ég það á enska blogginu mínu, Starlight and Strawberries. Þetta er mjög fallegt verkefni og finnst mér alveg dásamlegt hvað það hefur hjálpað mörgum. Það byggist á því að taka eftir einstökum augnablikum í daglega lífinu, augnablikum sem annars myndu kannski bara týnast…

View Post

fyrsti göngutúrinn

Þessi vinátta er svo yndisleg. Hún blómstrar dag frá degi og ég er með sæti á fremsta bekk. Við erum alls ekki að flýta okkur að kenna Aroni Ívari að ganga. En drengurinn vill helst bara standa, þó hann geti ekki staðið sjálfur ennþá. Hann er orðinn svo kraftmikill og fljótur að það má varla líta af honum. Hann togar…

View Post

að undirbúa jól í skókassa

Að fá gjafir er eitthvað sem Erik Ómar er tiltölulega nýbyrjaður að skilja hvað þýðir. Eða öllu heldur, hann er byrjaður að skilja eftirvæntinguna, gleðina og þakklætið sem fylgir því að fá gjafir. Litlu fiðrildin sem flögra um í mallakút þegar maður fær fallega innpakkaða gjöf, stútfulla af leyndardómum þar til umbúðirnar hafa verið opnaðar og dýrðin blasir við manni…

View Post

bláberjamöffins í molum

Þessi ungi maður átti að taka lúrinn sinn í hádeginu en harðneitaði. Í staðinn dreifði hann dótinu sínu út um allt, steig ofaní dótakörfuna og sat þar góða stund. Sigldi á vit ævintýranna. Reyndi að fela sig en passaði ekki á bólakaf. Hann varð líka að klifra á öllum húsgögnunum í herberginu. Skríða undir borðið. Byggja kastala. Prófa allt dótið…

View Post

lestarferð og bananabrauð

Það er veikindavika í uppsiglingu hjá okkur þennan mánudaginn. Kristinn var veikur alla síðustu viku og rétt svo náði að koma röddinni í samt lag fyrir sýningarnar um helgina. Núna eru litlu strákarnir mínir farnir að hósta illa og eru voða litlir í sér. Þörfin fyrir mömmuknús er mikil. Þeir skemmtu sér þó konunglega í sturtu með pabba sínum í…

View Post

“ónei! fishy, fishy” // af óperu og öðrum tónum

Í allan dag hef ég reynt að finna leið til þess að útskýra fyrir tveggja ára gömlum syni mínum að fiskarnir hans eru dánir. Síðustu daga hefur hann skemmt sér við að spjalla við þennan eina fisk sem tórði. Ef hann væri agnarsmár hefði hann ekki verið lengi að stökkva ofaní búrið til hans að leika við hann. Ég kom…

View Post

morð í myrkri // pönnukökugleði

Fiskarnir voru ekki glaðir með nýja heimilið sitt. Nema þeir hafi barist innbyrðis um hver myndi ráða yfir ríkidæminu. Þegar Susie litla fannst látin tveimur morgnum eftir að þau fluttu inn þá fóru alls kyns tilgátur á flug. Morð í myrkri. Tveir lifðu af. Hvor þeirra átti sökina. Áttu þeir sökina yfir höfuð? Þegar Njáll flaug svo uppá yfirborðið daginn…

View Post

oktoberfest // mánudagsrok

Þrjú lítil orð. Ég elska þig. Ég segi þau við strákana mína á hverjum degi. Oft á dag. Erik Ómar hefur ekki ennþá lært að tjá þetta í orðum en hann gerir það á annan hátt. Hann faðmar mig oft á dag. Knúsar mig eins fast og hann getur og kyssir mig út um allt andlit. Knúsin hans gera dagana…

View Post

blik í augum, fiskar í poka og haustið sem hvergi er að finna

Mér finnst alveg ofboðslega gaman að geta deilt með ykkur smá brotum úr dögunum okkar. Sérstaklega þar sem það fær mig til þess að taka betur eftir þessum litlu hlutum sem eru kannski frekar hversdagslegir en eru í rauninni algjörir töfrar. Þessi litlu augnablik sem eru svo dýrmæt. Eins og þetta til dæmis. Litli strákurinn minn sem er allt í…

View Post

eplabitar, danspartí og fleira konfekt

Ég sagði ykkur frá daglegu danspartíunum okkar í gær. Þau eru bara svo dásamleg að ég verð að deila þeim aðeins meira með ykkur. Litla skottið togar í mömmu sína og syngur með röddinni sinni: “mamma, mamma, dassi, dassi, dassi” – síðan hoppar hann og skoppar, allir angar út í loftið og heimtar að mamma dansi líka. Við setjum plötuna…

View Post