“zoom, zoom, zoom” og hláturinn springur yfir allt

Ég lifi í ævintýraheimi. Hver dagur kemur mér á óvart og ég veit aldrei hvert næsta klukkustund mun leiða mig. Stundum er ég risi. Stundum er ég dvergur. Stundum er ég ofurhetja sem þýtur áfram – “zoom, zoom, zoom” heyrist í litlu ofurhetjunni sem fylgir mér. Hann setur hendur fyrir aftan bak, ekki veit ég afhverju, og zoom-ar áfram. Við…

View Post

kaflaskipt líf

Lífið mitt er mjög kaflaskipt. Það er ekki oft sem við tökum eftir köflunum í lífi okkar en undanfarin tvö ár hafa þeir verið svo stórir og skiptin svo áberandi að það er ekki annað hægt en að stoppa og segja: Vá. Eftir tvær vikur förum við aftur til Kaliforníu. Græna kortið er ekki komið. Við höldum í vonina í…

View Post

ævintýraleg vegabréfsumsókn

Veðrið hefur verið algjörlega dásamlegt síðustu daga. Sólargeislar og fersk gola sem bítur aðeins í kinnarnar. Yndislegt. Ég fór í fyrsta göngutúrinn með Aron Ívar í vagninum og Erik Ómar stóð sig eins og hetja við að ýta honum út úr garðinum. Honum finnst svo gaman að hjálpa til. Litli molinn minn fagnaði líka fyrsta mánaðarafmælinu í síðustu viku svo…

View Post

að elta flugvélar

Sunnudagsmorgunn. Dýrindis kaffisopi. Þarf mögulega að fá mér annan bolla. Svefnleysið er algjört. En það er svo auðveldlega fyrirgefið á þessum yndislega morgni. Það er fátt sem veitir mér meiri gleði en drengirnir mínir tveir. Sólin teygði sig yfir húsþökin snemma í morgun og við fylgdumst með deginum lifna við, hnoðrinn og ég. Nú sefur hann loksins vært. Og klukkan…

View Post

lífsins gleði og ryksugan

Er það ekki saga til næsta bæjar þegar sonurinn biður um meira lýsi? Litli hnoðrinn minn er að taka vaxtarkipp svo nú er kúrað í mömmufangi allan daginn. Sólin lýsti upp heiminn í dag og glotti sínu breiðasta á rykið í stofunni. Svo það var ryksugað. Að minnsta kosti þangað til stóri strákurinn minn slökkti á ryksugunni. Aftur. Og aftur.…

View Post

augu barnsins

Uppáhalds leikfangið á þessu heimili eru bílar. Erik Ómar getur dundað sér endalaust með bílana sína. Raðað þeim upp. Keyrt þá út um allt. Skemmtilegast finnst honum að keyra þá yfir einhvers konar hindranir. Fótleggina á mér. Yfir nóturnar á píanóinu. Eða meðfram húsgögnunum. Nýlega byrjaði hann að benda á bílamerkin svo ég hef verið að kenna honum hvað bílarnir…

View Post

dansað á tánum

Horfi á krúttlegar táslur í dag.

View Post

morgunpúsl

Það greip mig einhver tiltektar löngun. Mig langar að gera lista og krota lítil falleg x við það sem ég er búin að gera. Mig langar að þrífa, þvo þvott og hafa hlutina á sínum stað. Í staðinn er allt í kross. Ég er hálfnuð með þvottinn niður stigann. Engir listar hafa verið gerðir. Ennþá. Og einhvern veginn er allt…

View Post

eitt stykki krútt og kaffi út um allt

Blár himinn. Og þreyttur hugur. Ég stakk höndinni ofan í kaffibollann í staðinn fyrir m&m og skálina. Svo hló ég eins og vitleysingur. Ein í sófanum. Ég fór með Aron Ívar í þriggja vikna skoðun uppá heilsugæslu í morgun. Erik Ómar datt í lukkupottinn á meðan. Hann fékk að fara á leikskólann þar sem amma er að vinna og leika…

View Post

dásemd á þreyttum degi

Það er svo mikil dásemd að heyra fuglasönginn inn um gluggana. Kuldinn var til friðs í dag svo sólin fékk að skína sínu fallega brosi. Litlir fætur trítluðu um gólfin, það var mikið hlegið og stolist í súkkulaði. Kaffisopinn bjargaði deginum og litli stúfur vill bara sofa í mömmufangi. Við fengum góða gesti í heimsókn og stóri stúfurinn minn var…

View Post

leiddu mína litlu hendi…

Eldri stúfurinn minn liggur núna sofandi í sófanum. Síðasta klukkutímann höfum við kúrað saman og sungið vögguvísur. Litla höndin hans hélt fast í mína allan tímann og vildi alls ekki sleppa. Krúttstund sem hjúfraði sér inn að hjartarótum. Hann var að leika sér í stofunni þegar skyndilega birtist köttur í glugganum á hurðinni sem liggur út í garð. Beint fyrir…

View Post

tónlist lífs míns

Erik Ómar hleypur í kringum vögguna þar sem Aron Ívar sefur vært. Hann er með lítið símtól í höndunum og leyfir litla bróður sínum að tala við afa. Síðan hleypur hann í hringi í stofunni og talar sjálfur við afa í litla símtólið. Hann elskar að vökva blómin og biður um að fá að vökva þau að minnsta kosti þrisvar…

View Post