dansaðu vindur

Það er svo skrítið hvernig þessi þrá eftir íslensku orðunum kemur yfir mig stundum. Kannski er það núna vegna allra þessara pælinga um Ameríku. Enskan svífur yfir öllu um þessar mundir. Mig langar svo að halda báðum bloggunum lifandi. Sérstaklega eftir að við hoppum yfir hafið. Ég hef það á tilfinningunni að ég muni ríghalda í dagrenninguna. Fyrir ykkur sem…

View Post

dropar í slag

Það eru slagsmál af bestu gerð fyrir utan gluggann minn. Droparnir hendast í allar áttir og á hvern annan og sameinast í einni skvettu á rúðunni. Unginn minn spriklar á gólfinu við hlið mér, grunlaus um hamaganginn utandyra. Ég hlusta á vindinn umlykja húsið og ímynda mér að stormurinn taki okkur í fangið og sveifli okkur til Oz. Það væri…

View Post

spjallað út í loftið

Áskorun breytt: blogga eins oft og ég hef tök á. Hvítur fjallgarður faðmar að sér Reykjavík og gullnir geislar renna sér niður brekkurnar. Bara fallegt. Það er svo gaman að fylgjast með litla drengnum mínum uppgötva heiminn. Tærnar sínar, hendurnar, tunguna, röddina, hláturinn… Alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi. Hann þykist vera klár í dag. Vælir hátt og snjallt ef…

View Post

poppkorn og fleira

Fíkusinn minn tók sig til um daginn og afklæddist. Nú hanga bara nokkur lauf á stangli og vita ekkert hvað þau eiga að gera. Eitt gult. Restin græn. Sem betur fer. Ég vökva eins og slökkviliðsmaður í þeirri von að hann haldi lífi. Haustið hefur greinilega stolist inn um gluggann. Ég bjó til poppkorn í gærkvöldi. Það brenndist. Það er…

View Post

halló herra Dickens

Það er erfiðara en ég hélt að standa við “ein færsla á dag” yfirlýsinguna þegar svona lítill sólargeisli skín í augun á mér allan daginn. Ég skulda ykkur hér með fjórar færslur og mun reyna að bæta úr því í dag. Ég vona að þið hafið gaman af þessu orðarugli. Ferskt loft sem ilmar af kaffi og bragðast eins og…

View Post

þetta er tíminn

Vetrarkuldinn er svo sannarlega farinn að láta vita af sér. Það er samt svo notalegt. Ferska loftið er alveg einstaklega gott fyrir sálina. Og á meðan það er ekki allt á kafi í snjó þá ætla ég að njóta þess. Snjórinn er samt ekki alslæmur. Hann á sínar góðu hliðar og ég vona að hann sýni okkur meira af þeim…

View Post

spriklað á tánum um nótt

Ísland sýnir sínar bestu hliðar í dag. Á svona dögum gæti ég búið úti. Plantað mér einhvers staðar á meðal trjánna og leyft fuglunum að narta í eyrun á mér. Við mæðginin fórum í langan göngutúr í Gufuneskirkjugarði sem er bara hinu megin við götuna hjá okkur. Það er svo mikill friður í þessum garði og algjör dásemd að labba…

View Post

stjörnuljós

Stundum er nóg að horfa bara á stjörnurnar. Umvefja sig víðáttunni þarna uppi og gleyma sér á meðal ljósanna.

View Post

síðustu laufin

Veðrið í dag er draumi líkast. Köld golan hoppar á milli trjánna og hristir síðustu laufin af greinunum. Sólin stráir geislum sínum í hjörtu mannanna og lýsir upp andlit barnanna fyrir veturinn. Hvítir toppar fjallanna standa vörð um borgina og fuglarnir taka dýfur í ferskleikanum sem hangir í loftinu. Fegurð í sinni tærustu mynd. Þetta er svo skemmtilegur tími. Þegar…

View Post

að týnast í skýjunum

Hér býr lítill snáði sem veltir sér í hringi til að komast áfram. Hann er ennþá of lítill til að skríða, en hann reynir. Ég lít af honum eitt augnablik og þá er hann kominn hinu megin á teppið. Alltaf á leiðinni út í heim. Svo er spriklað með alla anga út í loftið, frussað af öllum kröftum og brosað…

View Post

þessi stemning…

Stundum þá líður mér eins og litlum fugli í stórvindi. Hellingur af alls konar togar í mig úr öllum áttum á meðan ég erfiða við að fljúga beint. Þá finnst mér gott að koma hingað og hugsa um eitthvað fallegt. Troða öllu hinu inní þvottavél og leyfa því að veltast þar um í smástund. Ég tók mig til að skannaði…

View Post

lítil leyndarmál

Það er allt annað en auðvelt að baka með lítið kríli á hliðarlínunni. Ég og Erik Ómar ákváðum að skella í nokkra hafraklatta í dag sem gekk bara þónokkuð vel – eða þar til deigið var tilbúið. Þá var sá stutti búinn með þolinmæðina og lét sko vel í sér heyra. Hann verður söngvari eins og pabbi sinn, það er…

View Post