stofugluggabíó

Fuglarnir sitja á trjágreinunum og spjalla um veðrið. Sólina og snjókornin sem keppast um að rigna yfir okkur. Lítið líf er byrjað að spretta fram undir fótum þeirra: grænt, vorlegt og lifandi. Greinarnar sveiflast til í vindinum og fuglaparið flýgur á braut, þvert yfir skýjaslæðuna sem hefur plantað sér á himininn. Heilsan er ekki alveg komin í lag svo ég…

View Post

logn í stormi

Þar sem við erum á landinu tímabundið núna þá búum við hjá foreldrum mínum. Heimili þeirra er eins og stormsveipur. Það er ekki fyrr búið að taka til en litli stóri strákurinn minn er búinn að dreifa vel úr sér aftur. Bókaflóð hér. Bílaraðir þar. Pottar, pönnur og kaffikönnur á víð og dreif um húsið og af og til öðlast…

View Post

sérkennileg sumargjöf

Sumardagurinn fyrsti. Gleðidagur. Það var meira að segja sól og yndislegt veður sem kítlaði mig í gegnum gluggana. Þegar ég var lítil fengum við systkinin alltaf sumargjöf frá foreldrum okkar. Þó það sé löngu liðin tíð þá fékk ég samt sumargjöf í gær. Ef gjöf skildi kalla. Sumarið prílaði uppá topp og brosti sínu breiðasta. Og gaf mér sýkingu í…

View Post

brosað ofaní kaffibollann

Fyrsti kaffibollinn eftir níu mánaða bið rann ljúflega niður. Vá. Vertu velkominn aftur í líf mitt kaffisopi. Við vorum í stuði í dag. Miðvikudagsbros í boði eldri sonarins.

View Post

kúrað og lesið

Ég tók þá skemmtilegu ákvörðun að byrja að lesa Sense and Sensibility eftir Jane Austen á meðan ég gef yngri syni mínum að drekka. Hann hangir meira og minna á brjóstinu svo bókin ætti að vera fljótlesin. Kannski ég taki bara Jane Austen þema á þetta og klári allar bækurnar á meðan litla kúridýrið mitt drekkur og hnoðrar sig saman…

View Post

bara fimm vikur

Ég er tilfinningalegur rússíbani þessa dagana. Söknuður og hormónar dansa í skottís í hausnum á mér. En lífið er gott. Það er sólskin fyrir utan gluggann minn. Fuglasöngur í trjánum. Og bara fimm vikur í manninn minn.

View Post

tveggja barna móðir…

Vindurinn leikur sér í trjágreinunum og þeytir laufblöðum í hringi. Lítill drengur hleypur brosandi um garðinn, leikur sér með prik og steina. Sparkar í bolta og hleypur svo og nær í bílinn sinn og keyrir hann hring eftir hring. Ég fylgist með eldri syni mínum út um gluggann og hlusta á yngri son minn anda í vöggunni sinni. Hann fæddist…

View Post

hvíslið í vindinum

Ég á mér þann draum að verða rithöfundur. En það mun ekki gerast nema ég geri eittvað. Fari að hnoða saman orð og skapa veröld sem er engri lík. Og á meðan eiginmaðurinn er í Ameríku, litli snúllinn minn prílar út um allt og ég bíð eftir barni númer tvö – er þá eitthvað annað betra að gera í stöðunni?…

View Post

sólarljós sem trítlar

Dásemdar sólarljós sem trítlaði um strætin í dag. Grasið vaknaði og tók laufin á trjánum með í eltingarleik. Það var grillað í Heiðmörk og nú lyktum við eins og kolagrill. Leigjandinn er fundinn og í dag var skrifað undir samninginn. Þvílíkur léttir sem það er að vera búin með þann lið á listanum. Nú get ég krotað fallegt x með…

View Post

pönk og kassar og toblerone

Ég hlakka alveg svakalega mikið til að gleyma mér yfir Eurovision á laugardaginn. Pollapönkararnir eru svo frábærir og alveg búnir að sprengja krúttskalann hjá mér að minnsta kosti. Ég verð nú samt viðurkenna að mér leist ekkert voðalega vel á þetta lag fyrst en ég er algjörlega búin að skipta um skoðun. Boðskapurinn er frábær, þeir eru æði og skila…

View Post

hugarflækja

Það var svo fallegur snjór sem prýddi fjöllin í dag. Eins og rjómaslettur sem láku niður hlíðarnar. Og sólin trallaði og sendi geisla sína spriklandi í partíið. Svo sá ég líka tvo máva á spjalli uppá ljósastaur. Loksins, loksins er ég búin með fyrsta skrefið í flutningi okkar til Bandaríkjanna. Ég sótti um sex mánaða dvalarleyfi fyrir mig og soninn.…

View Post

sólskin þýðir piparmyntuís

Dásamlegir sólargeislar hafa hreiðrað um sig í Reykjavík í allan dag. Nú hefur snjórinn ekki leyfi til þess að láta sjá sig aftur. Fyrirmyndar skýhnoðrar trítla yfir himininn. Ilmur af grillmat hangir yfir öllum íbúðarhverfum og hróp og hlátrasköll enduróma húsanna á milli. Það er komið vor. Og sumarið er rétt handan við hornið. Ég er nýorðin forfallinn múmínbollasafnari. Ég…

View Post