Orð á frost-stangli

Heimurinn breyttist í ævintýri í dag. Ég datt líka ofan í snjóinn og týndist næstum því. Fékk mér óvart kók. Hugsaði mikið – og reyndi að fylgja einu snjókorni með augunum. Fór í koddaslag. Sat í sófanum og fann hvað það er ótrúlega kósí að hlusta á vindinn blása fisléttum frostrósum aftur til himins – eða svona hér um bil.…

View Post

Snjókorn

Það snjóar og snjóar. Hvít snjókorn og fullkomlega skapaðar flygsur umkringja Ísland. Þær þeytast í allar áttir, í hringi og út og suður. Allt er hvítt. Eins og óskrifuð blaðsíða. Eins og nýtt upphaf. Hvert korn er einstakt, ekkert er eins. Eins og mannfólkið. Þau eru misjöfn að stærð og gerð og lenda í ýmsu – misgóðu – á leiðinni…

View Post

Snjóenglar og hálfur súkkulaðikassi

“Það er alveg einstaklega spennandi að fylgjast með bílnum mínum drukkna í snjó.” Þetta var skrifað í gær þegar ég sat við gluggann í vinnunni og fylgdist með snjónum henda sér til jarðar í stórum mjúkum flygsum. Það var líka alveg einstaklega gaman að skafa af honum í 20 mínútur eftir vinnu – með kúst og sköfu að vopni! Ég…

View Post

Aðventan, jólaperlur og kósíheit

Það er komin aðventa í húsið. Ljósastjörnur hanga í gluggunum og húsið angar af piparkökum og mandarínum. Mamma sat í gærkvöldi og föndraði fallegasta aðventukrans sem til er. Hún er svo hæfileikarík hún móðir mín. Þegar við komum inn úr snjónum voru grenigreinar út um allt, Frank Sinatra á fóninum að syngja jólaperlur og súkkulaðimolar að hrynja ofan í skál. …

View Post

Paradise

Ég sit ein í myrkrinu og hlusta á Paradise með Coldplay. Frostið er úti og það glitrar eins og stjörnur. Loftbólurnar springa í kók-glasinu. Hárið er úfið og augun þreytt. En lagið er gott. Bara gott.

View Post

Snjókorn…

Lítil og hvít listaverk hringla niður úr háloftunum. Loksins er fallegi jólasnjórinn kominn. Það er ekki annað hægt en að dáleiðast af fegurðinni. Ég hlakka til að labba heima úr vinnunni á eftir. Kannski kem ég við í búðinni og splæsi í einn kósí geisladisk. Ég gæti setið endalaust við stofugluggann, með góðan kaffibolla og horft á kornin svífa með…

View Post

Svolítið “fullorðins”…

Það er kítl í sálinni minni. Það minnir mig á fuglatíst. Ofurlítið og agnarsmátt. Það er svo margt nýtt að gerast í lífinu mínu. Það er hvíslað “fullorðins” úr öllum hornum. Ég ætla að njóta hvers kafla. Ég fékk lánað heilt kíló af brúðkaupsblöðum. Nú er það konfekt fyrir augun á hverju kvöldi – jibbí! Skipulagið komið á fullt og…

View Post

Krúttleg rjómasletta eða rokið?

Það er svoleiðis hífandi rok hérna í Hafnarfirðinum að bílarnir eiga í mestu erfiðleikum með að halda sig á jörðinni. Ég veit varla hvort ég þori að keyra yfir til Reykjavíkur á eftir. Klukkan silast áfram á meðan ég hakka í mig hverja blaðsíðuna á fætur annarri í Gamlingjanum. Þessi bók er ótrúlega öðruvísi skemmtileg. Það sem maðurinn hefur ekki…

View Post

Nigella’s kitchen

Eftir kvöldmatinn þá settist ég niður fyrir framan sjónvarpið með ilmandi kaffibollann minn og súkkulaðimolana tvo og tók saumadótið í hendurnar. Fréttirnar rúlluðu áfram í takt við sporin mín á striganum en ég hafði varla fyrir því að líta upp, þvílík dásemd sem það er að sauma þetta verk! Þangað til Nigella koma á skjáinn. Ég verð að viðurkenna að…

View Post

Kaffibollinn, saumalína og allt sem er kósí

Ég kúrði undir sæng í gær eftir að ég kom heim úr vinnunni og lét hugann reika niður minningabraut bloggtíðarinnar. Eftir hálftíma kúr þá vippaði ég af mér sænginni og stalst í tölvuna og skoðaði gamlar bloggfærslur frá því í denn. Mikil ósköp var það skemmtilegt og það minnti mig á hvað það er gaman að hnoða saman þessa texta…

View Post

Drip Drop…

Stundum er bara hægt að hlusta regnið.

View Post

Ímyndað ferðalag með súkkulaði í vasanum

Sko. Ég er með eitt vandamál. Það heitir súkkulaði. Hvers vegna er svona erfitt að lifa án þess? Og hvers vegna ætti ég yfir höfuð að gera sjálfri mér það að sleppa því? Það er komið af grænmeti… einhver mótmæli? Nei, hélt ekki. Það er gott fyrir hjartað. Lyftir upp sálarkorninu eitt augnablik. Það heillar, bráðnar vel í munni. Bragðgott…

View Post