lítil strandarferð // a little beach trip

Út úr húsi var það eina sem skipti máli í vikunni sem leið. Svo við fórum á ströndina. Við höfum aldrei farið á ströndina í miðri viku og það var dásamlegt! Við munum pottþétt reyna að gera það oftar næsta haust ef dagskráin hans Kristins leyfir. Það var nánast enginn á svæðinu. Nokkrar sálir í eftirmiðdagsgöngu alveg eins og við.…

View Post

þrenningin mín og pökkunarferlið // my trio and the packing process

Við höfum reynt að njóta hvers dags sem við eigum eftir hér í bili og reynt að finna eitthvað til þess að hjálpa tímanum að líða. Þetta ár er búið að vera alveg meiriháttar með tilheyrandi tilfinningarússíbönum, gleði, lífsreynslu, erfiðleikum og yndislegum upplifunum. Það er alltaf voða spennandi að sjá slökkviliðsbíla og Erik Ómar ljómar allur af gleði þegar þessir…

View Post

afmælismolar og Gianni Schicchi // birthday sweets and Gianni Schicchi

Við erum orðin voðalega spennt að koma heim til Íslands í sumar. Erik Ómar biður um að fara í flugvél, lest eða þyrlu nokkrum sinnum á dag til þess að fara að heimsækja afa Einar. Spennan leynir sér því ekki hjá þessum litla manni. Nú er rúmlega vika í brottför og ég get varla setið kyrr. Við erum komin með…

View Post

gaman á ströndinni // beach day fun day

Okkur fannst vera kominn tími til að fara á ströndina aftur svo við gerðum það á laugardaginn var. Það var dálítill vindur sem var gott því þá fundum við ekki eins mikið fyrir hitanum. Það var heldur ekki alltof mikið af fólki svo við höfðum smá pláss til fíflast og hlaupa um. Við byggðum sandkastala, hlupum út í sjóinn og…

View Post

til hamingju með afmælið Aron Ívar // happy birthday Aron Ívar

Hann kom fyrr en ég bjóst við. Dagurinn sem yngri sonur minn varð 1 árs. Mér finnst eins og það hafi verið í gær sem hann ákvað að kanna aðstæður utan bumbunnar, svona líka yndislega krumpaður og lítill. Þann 9. apríl fögnuðum við þessu fyrsta ári í lífi Arons Ívars. Það hefur verið allt annað en hefðbundið og stútfullt af…

View Post

páskar í ameríku // easter in america

Páskarnir í ár voru fyrstu páskarnir mínir annars staðar en á Íslandi. Það var upplifun, öðruvísi og yndislegt á sinn hátt. En ó hvað ég saknaði Íslands mikið. Og fjölskyldunnar. Og allra kósí hefðanna sem við höfum á þessari hátíð. Sem betur fer sendu mamma og pabbi okkur páskaegg svo við fengum smá smakk af íslensku páskunum. Erik Ómar komst…

View Post

dýragarðurinn í San Diego // the San Diego zoo

Fyrir tveimur vikum var vorfrí hjá eiginmanninum og við á leið í ferðalag. Hér kemur lítil saga úr dýragarðinum. Við fengum okkur kaffi, hoppuðum upp í bíl og lögðum af stað til San Diego. Leiðin lá í dýragarðinn og það var frábært með skínandi kirsuberi á toppnum. Erik Ómar elskaði að sjá öll dýrin og hefur hlaupið um allt síðan…

View Post

byrjun vorfrís // the beginning of spring break

Vorfrí á brunandi ferð hjá okkur þessa vikuna. Fórum í Barnes and Noble á fyrsta degi og lásum bækur og klifruðum í bókahillum. Á öðrum degi fórum við í leit að einhverju skemmtilegu. Fundum ýmislegt. Til dæmis vindinn. Okkur fannst þess vegna sniðugt að fara á ströndina. Það reyndist ekki vera mjög sniðugt eftir allt saman. En við hlógum mikið.…

View Post

tíminn fer ekki, hann kemur // time doesn’t pass, it comes

Við löbbuðum í gegnum ævintýraland í dag. Röltið leiddi okkur um göturnar í Orange á meðan við biðum eftir að Kristinn kláraði skóladaginn. Við fundum sólina sem gaf okkur freknur. Reyndum að klappa fiðrildum sem flögruðu í kringum nefin okkar. Svifum í gegnum blómailm, umkringd trjám sem voru að skipta yfir í sumarfílinginn. Fuglarnir sungu fyrir okkur nokkur lög og…

View Post

halló tré og bíódeit // hello tree and a movie date

Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hvað Erik Ómar er orðinn stór. Mér finnst hann stundum eldast um heilan helling á einni nóttu. Hvert fór tíminn eiginlega? Þessi stóri strákur hljóp um allt hringtorgið í Orange um daginn til þess að heilsa upp á trén. Það mátti ekki skilja neitt út undan. Og hann faðmaði sum þeirra eins…

View Post

tvö lítil augnablik // two tiny moments

Aron Ívar hefur yfirleitt verið sofandi þegar við förum í göngutúr út á leikvöll. Hann vaknaði þó um daginn í miðju gamaninu og við notuðum tækifærið og splæstum í fyrstu róluferðina. Hann var ekki alveg viss hvað honum fannst um þá ferð en hann kvartaði ekki svo honum hlýtur að hafa fundist gaman. Það rigndi í gær og drengirnir stálust…

View Post

öndin, íkorninn og allt það // the duck, the squirrel and all that

Að ganga um Orange er eitt af því skemmtilegra sem ég geri. Húsin er lítil og sjarmerandi, umvafin görðum með trjám, blómum, appelsínum. Hvítar girðingar. Gamaldags bjöllur keyra um göturnar. Íkornar hlaupa upp og niður trjástofnana. Fuglar fljúga á milli greinanna. Svo er gamli bærinn auðvitað bara algjör draumur. Við sáum tvær ástfangnar endur á skólalóðinni í dag. Þær syntu…

View Post